Sirrý og Palli
24.09.2007 01:17:11 / bakkatjorn4

4 Dagar!!

 

 Jæja, núna eru einungis 4 dagar í það að ég fari út til Englands.

    ->    

Ég er búin að koma upp síðu sem ég ætla að reyna að blogga og kannski setja inn myndir.;)

Hún er :

http://gudbjorg-uk.bloggar.is/

(Ég er búin að setja hana í bloggaradálkinn hérna við hliðana)

En ég ætla ekki að hafa þetta neitt lengra.

 

-Guðbrg


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 00:08:55 / bakkatjorn4

Skólalok ofl.

 

 Það er nú ekkert voða laus rithöndin hér þessa dagana, letin allveg að fara með mig.  Skólaslit grunnskólans voru í gærkvöldi ,mikill mannfagnaður og ég þurfti að baka fyrir það eins og sjálfsagt fleiri mæður á þessum stað (kanski einhverjir pabbar hafi hent í eina köku, en allavega ekki á þessum bæ)  Guðbjörg stóð sig með sóma, svo sannarlega. Strax um kvöldið skutluðum við henni á nýja vinnustaðinn, spennandi að komast stöku sinnum í úthald og frí frá foreldrum.    Um þessar mundir er ég búin að vera heima í 3 mánuði og ekki bólar enn á vinnuhæfum bata, það sígur auðvitað í rétta átt en ji minn einasti hvað það gengur hægt.  Þegar slit er orðið svona mikið þá þarf mikla þolinmæði til að bíða eftir að batna.  Tveggja slysa dúkurinn er búinn, ég sem hélt að það yrði of stórt verkefni, annars var þetta nafn  sett á greyið meira í gamni en alvöru. Það vildi þó þannig til í þessari stórfjölskyldu að ýmislegt henti meðlimina. Eftir hálfan mánuð reyndu læknar að sálga mér þegar þeir ætluðu að taka sauma sem ekki átti að taka. Ekki var búið að kekkla langt þegar sonurinn fékk bráða lungnabólgu og var lagður inn á sjúkrahús, litli frændi puttabrotnaði og hjólinu hanns var stolið, ekki víst hvort var verra. Stóri bróðir missti mynnið og er ekki til frásagnar um heilan sunnudag, rifbeinsbrot og mar! ! ! Pabbi var tekin í skottið á Jarisnum þegar rúntarinn sá ekki þann rauða á Langholtinu fyrir fatlaða manninum? Svo ef allt er talið eru þetta fimm slys og dúkurinn búinn. Ætla að fara að telja út  smámyndir sem taka ekki langan tíma:$ Njótið þess að vera til á þessum yndislega árstíma, ekki að ástæðulausu að græni liturinn er minn litur (en ekki sá lillablái, þá væri ég kanski samkynhneigð eins og Tvinki) Já maðurinn er kynleg skepna en brosum til hanns samt, það gefur svo mikið

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 15:39:24 / bakkatjorn4

úps er hér enn

 Er ekki orðið tímabært að láta vita af sér.

Það er svosem ekki margt sem gerist hér, þó aðeins , eins og T.P. fékk sér nýjan bíl um helgina og G.P. er byrjuð að læra á bíl... best að fá sér vespu(gamall draumur).  Pabbi gamli gæti svosem haft það betra eftir aftanákeyrslu sem hann lenti í á mánudag í síðustu viku og þar með kláraði hann gamla bílinn þeirra, svo nú aka þau um á ,nýjum, eða allavega nýrri Jaris. Sjúkraþjálfunin er aðeins farin að skila árangri svo greina megi og þá léttist lundin í leiðinni. Þetta er metið erfitt hné og vand með farið, passa bólgur og fleira, bara að hlíða .....

Við eigum von á Vestfjarðarkokknum á sunnudag og gerum hosur okkar grænar fyrir honum og MUURIKKUNUM hanns í góðra vina hóp jammi jamm.   Segist frá síðar.  Nú svo er litla systir að leggja upp í 200 brjósta ferð um Skeiðin og víst er að þar verður kátt á hjalla á laugardag vonandi að þær fái sólina prinsessurnar: I.B.P. er í prófi og þá fer þessari önn að ljúka og við tekur ferð til Monakkó í boði Rauðakrossins og furstans, spennandi.. gott í bili og góðar stundir


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 15:17:35 / bakkatjorn4

Vor í útlöndum

 Budapest fagnaði okkur með sól og 26° hita þessa 5 daga sem við stoppuðum þar. Falleg borg og græn, og allveg undarlegt hvað okkar námsmenn voru að gera hér áður fyrr, allir fóru í nám þar sem byggingar voru ótrúlegar að stærð og fegurð á meðan íslendingar hýrðust í moldarkofum langt fram á síðustu öld.Voru þessir menn kanski bara að lyfta ölkrúsum og sofa hjá? En hvað um það í svona hita og góðu veðri er ekki annað hægt en að láta sér líða vel og því var bara reykað á milli veitingastaða og etið og drukkið, þeir kunna nú allveg að elda þarna suðurfrá  allflestir .Árshátíðarkvöldverður í boði JÁverks var sigling á Dóná á sunnudagskvöldið ásamt danssýningu og söng frá Ungverjalandi frábærir listamenn og litskrúðug fötin þeirra allt fyrir augað. Við fórum líka í aðrar skoðunarferðir og sveitaferð þar sem reyndar er, eins og annarsstaðar verið að veiða ferðamanninn í viðskiptanetið.  Þessi borg er tilvalin til annarar heimsóknar þegar ég get orðið gengi eitthvað. Þegar við kvöddum fararstjórann spurði hún hvort við værum ekki örugglega frá Íslandi því hún hafði alldrei séð fólk yfirgefa landið með eina tösku og eingan handfarangur, og taskan náði ekki einu sinni fullri þingd8|  Hún ætti bara að vita hvernig það er að vera fótalaus í ódýru útlandi:whut: En hvað um það, vorið kom og fór á þessum 5 dögum hér heima, og landið fagnaði okkur í grenjandi rigningu og svartaþoku og þanng er veðurspá næstu daga nema kanski á Costa del Borg? þar virðist alltaf vera blíða:D Í dag var svo fyrsta samræmda prófið hjá Guðbjörgu og var hún nú bara nokkuð sátt þegar hún kom heim eftir það. Svo eru þau koll af kolli næstu daga, svolítið strembið en hefst vonandi allt fyrir áhugasama. Sjúkraþjálfun gengur nokkuð vel þó enn verði að fara rólega ;) ég fer nú allveg að fara að reyna að keyra bílinn um leið og ég get beigt fótinn nóg en þangað til yfir og út og fleiri æfingar.... brosið, þá brosir lífið við ykkur

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 22:51:29 / bakkatjorn4

Gleðilegt sumar

Það fraus saman veturinn og sumarið og veit það á gott samkvæmt gömlun sögnum. Og í sumarstemningunni fengum við okkur bíltúr Þingvallahringinn og upplifðum túrhestafílinginn8) Veðrið var allveg einstakt gluggaveður, svo bara þess vegna fórum við ekkert í gönguferð :haha::haha: heldur tókum stókostlegan sumarbústaðaskoðunnarhring eða öllu heldur -ég skal byggja stærri bústað en þú nágranni, skoðunnarhring- Vá hvað húsin eru orðin stór VÁ VÁ8| Svo enduðum við á Nesjavöllum í fyrsta kaffihlaðborði sumarsins, bara nokkuð gott þó það hefði mátt líta betur út, svona hlaðborð líta bara vel út ósnert, en þetta var nú samt þokkalega gott.Nú heima biðu svangir ungarnir , svo við skeltum á grillið handa þeim þegar Palli hafði lokið fyrstu Ingólfsfjallsgöngu eftir slys:) Já hann rölti sér upp á brún hjá grifjunum og tók nokkrar myndir fyrir mig svo ég gæti séð hvernig umhorfs væri ..langar svo að sjá:$... Og hvað er svo betra en að leggja sig í heita pottinn með snarkandi arineld á eftir. Það geysar sótt í Urðartjörninni kallast Gullfoss og Geysir á fínu máli, vonandi að það taki fljótt af, veit ekki ógeðslegri veiki fyrir mig:^) óska þess að við sleppum;) njótið sólarinnar og gæða komandi sumars

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 00:11:34 / bakkatjorn4

Föstudagurinn 13

 Ég er ekki hjátrúafull þannig að stigar og svartir kettir séu á válistanum, en þegar ég fer að skoða síðustu dagssetningu  hummm þá hugsa ég mig aðeins um. Að flestu leiti bara nokkuð góður dagur ,sjúkraþjálfun með dekurnuddi, hekkla smá skrepp í Rvk. að leitta að meira heklugarni, hitta Steina frænda ogkoma sér heim á góðum tíma, sækja Tryggva í vinnu, borða skutla Tryggva út í björgunarhús, (hann á leið á björgunaræfingu í Rvk.) hekla meira og fá svo símtal: Já hæ mamma hvað ertu að gera...það er allt í lagi með mig, en ég er á Borgarspítalanum með Tryggva, hann er með 40 stiga hita og þeir vita ekki hvað er að..?Ok við í bæinn aftur, derngurinn kominn meðbráða sýkingu, og meðhöndlaður sem slíkur, um kl 03 er hitinn í nokkrum kommum og við rúllum heim. Laugardagur, við í bæinn og fáum niðurstöður Bráðalungnabólga og lyfjagjöf á fullu, lagður inn á Borgó, og þaðan fluttur með sjúkrabíl á Selfoss, lyfjagjöf haldið áfram til sunnudags og þá sóttum við kappann höldum honum heima á lyfjum svo er bara að hafa það rólegt hahahahah sé það nú ekki allveg fyrir mér en verðum að reyna. Já ja bara rólegt hérna um helgina, njótið dagsins í dag og elskið hvert annað því morgundagurinn er óráðinn

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 21:08:12 / bakkatjorn4

Hæ er enn hér

Komið að næstu færslu. Já maður situr ekki alltaf við tölvuna og grær á meðan,nú svo ef ég kemst að við apparatið hoppar þessi error voða oft upp á skjáinn og þolinmæðin endist ekki í lagfæringar. Þetta með gróandann hann virkar hraðar úti í náttúrunni en hjá mér:^). Sjúkraþjálfinn ætlaði nú bara að klára dæmið á miðvikudag og segja má að honum hafi tekist það , því restin af þeim degi og fimmtudagur fór fullkomlega í vaskinn ...eins og þar stendur . Ég er eins og prinsessan á bauninni svo viðkvæm og þoli ekkert:D bæ þe vei hún var víst fyrsti vefjagiktarsjúklingurinn8) En sem sagt þetta hné er svo illa farið að það má ekki blása á það hvað þá snerta;),,,bara horfa.Ég er ekki farin að geta keyrt bíl ennþá, get ekki beigt fótinn nógu mikið og vantar aflið með gæti ekki bremsað úps...Og þess vegna hef ég það bara notalegt heima hjá mér (þarf ekki einu sinni að fara út í búð til að versla ÆÐI ÆÐI) Tveggja slysa dúkurinn kemur sér vel núna þegar ég hef henst út um alla Reykjavík til að hirða upp eina og eina dokku hér og þar, skil ekki allveg leiðbeiningarnar með garnið en sem sagt þetta er komið. Svo vonast ég til að fá sendingu frá vinkonu, svona til tilbreitingar að fá að gera eitthvað annað í smástund;) Annars líða mínir dagar bara nokkuð hratt nokkrir líta inn í kaffisopa annað slagið og svo er gott að hafa eina heimavinnandi í næsta húsi, passlega löng gönguferð í létt spjall:lol: Yfir og út í bili, brosið þá brosir lífið við ykkur.

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 22:10:47 / bakkatjorn4

Norðurferð

Nú þá erum við komin aftur heim eftir heimsóknina á norðurlandið. Heldur var þetta nú óvenjulegur ferðamáti af okkar hálfu, þar sem við tókum flugið á Akureyri og svo bíl inn í sveit með viðkomu í norðlensku morgunverðar hlaðborði hjá góðum vinum á Borgarsíðunni ummmmm gott að borða og gott að vera með góðu fólki, takk fyrir okkur.  Mývatnssveitin fagnaði okkur að vanda og Neslöndin notaleg eins og alltaf. Og enn var ekið af stað í matarboð með forrétt, aðalrétt og bláber og rjóma á eftir að hætti Dísu gömlu frænku ala 1957 ásamt feiknar miklu spjalli um það sem máli skiptir og hitt líka.. Aðallega var þó verið að ganga frá legsteinamálum og það er nú ekki allveg sama,,, steinn og steinn:$ Nú helgin var svo kláruð með heimsóknum í Belg og Neslönd. Það er ótrúlega þægilegt að ferðast svona og allir koma hvíldir heim enn samt líka gott að vera eigin herra á eigin vegum. Þá er það bara morgundagurinn og heimsókn til Binna landliðslæknis, sjáum hvað hann segir. Passið ykkur á þokunni og verið góð

» 11 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 17:04:45 / bakkatjorn4

1,2 og 3

Jæja eitthvað gengur nú illa hjá læknaflórunni að hreinsa úr mér saumana. Vegna veikinda skurðmeistara varð að fresta skoðunarferð til 3. apríl nk.  Nú auðvitað snéri ég mér til minnar einkahjúkrunarkonu  sem alltaf er boðin og búin þessi elska og að vörmu spori kom hún og skar á nokkra sauma, af festu og óbilandi öryggi;) Þegar svo átti að vinda sér í þann stóra þá sat allt fast:!: Sama hvað var togað og togað:!: Eftir rökræður og bollaleggingar ákváðum við að setja þetta í doktorshendur:!::!: Í dag föstudag rann svo upp heimsóknardagurinn og viti menn - tveir menn- ekkert gekk :$ svo hér sit ég og get ekki annað með staurfót og verð þannig til 3. apríl :^) Með sauminn og bara fínt er það ekki? Stundum finnst mér að við séum í tilraunaaðgerð, koma eftir x-marga dagatil að... svo ef enginn getur reddað þessu þá er það bara allt í lagi:cry: Nú að öðru fyrsta vinnuvika PT er liðin og allt er eftir áætlun gengur bara vel. Versta við að vera svona heima er hvað maður missirú dag og dag allt verður eins nema ef einhver kíkir inn allta gott að sjá fólk, annars hef ég það mjög gott og gengur vel að hekla þó er frekar stutt í páska miðað við að verkefnið er í páskalitunum:D enn það kemur nýtt ár kveðja í bili og farið varlega í umferðinni

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 14:52:49 / bakkatjorn4

Græna ljósið

 Hvað er betra en góðar fréttir. P.T. fór í læknisskoðun í morgun og fékk GRÆNT LJÓS má sem sagt fara að vinna. þetta er auðvitað það sem stefnt var að að sjálfsögðu. Svo nú er bara að fara að koma sér í formið og gá hverju fram vindur, gaman að því.  Já ég hef eitt kvöld prufað að vera á msn...og það kvöld var bara hún mamma mín sem ég hafði að tala við eða skrifast á ..mér skilst að ég þurfi upl.  sem er svo "addað"inn vinsamlegast sendið þær upl.á netfang svo uplýsingarfulltrúi minn geti "addað" því inn fyrir mig.  Annars er það heklunálin sem á hugann núna og gengur vel að eiða tímanum með henni.Svo þegar hækjum sleppir getur ýmislegt farið að gerast, því fylgir reyndar aukin heimilisstörf svo ég veit ekki hvort ég læt þær af hendi svo aðrir sjái strax:haha: Parketlögn er að klárast beðið eftir flutningum svo hægt sé að klára, þetta er ótrúlega flott og hreint..;) og verður gaman að fara að þrífa á eftir en meira síðar

» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 13:42:11 / bakkatjorn4

Heilsubælið í Tjarnarkverfi

Það sannast að ekki þurfa nauðsinlegustu hlutir að vera dýrir! Samanber hækjur sem að verðgildi eru 2200 kr. parið og hafa verið þarfa þing á þessu heimili undanfarin ár. Þegar einn hættir þá tekur annar við og svo geta allir notað þess á milli. Sem sagt hið besta fjölskyldu sport hehehe. Húsmóðirin lyggur fyrir eftir eina enn hnéaðgerina sem á að duga eitthvað ,(þeir halda læknarnir að þeir séu alltaf að finna upp vatnið þegar maður kemur NÝR SJÚKLINGUR). Nú var semsagt verið að skafa gamlan liðþófa og örvefsmyndanir ásamat....ath það er eitthvað nýtt....kalkmyndunum (eða sagði hann kanski kalkmyndum:!:). Ótrúlegt þessir menn sem hafa starfað í þessum geyra svo árum skipti að halda að þeir geti talað við sjúkling nýkomin úr svæfingu á þessu færibandi, svoviðkomandi skilji og sé með allt á hreinu:$ Þetta þíðir veikindafrí uppá 6-8 vikur og eflaust einhver endurhæfing. Svo samkvæml læknisráði á ég að hafa hægt um mig, og get ekki annað:evil:ásamt bólgu og verkjalyfjaáti. En  hvað þá :$ jú auðvitað, dugmikli eiginmaður minn, lætur að vanda hendur standafram úr ermum og drífur sig í parketlögn 8| og  hvisssssss bængggggg altt tilbúið og þáer eins gott að kunna sjálfhverfa íhugun og anda djúpt inn og langt út og bara horfa ááááááááá:cry:´vitandi að allt sem mátti /þurfti gera um leið bíður bara, svoooooooo yndisleg þessi heimilisstöf og trú sínum:klikk:. Svo er bara að vona að allt gangi vel hjá Tryggva og Ingu Birnu á Vatnajökli og einnig æskilegt að þau kunni sitt fag og fari efti veðurspá dagsins ,verði Björgunarfélagi sínu til sóma í ferðinni eigið góða helgi allir síjú Sirrý

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 22:39:04 / bakkatjorn4

*Fyrsta bloggið*

Jæja, þá er það fyrsta bloggið...

Eða í rauninni annað þar sem Óskar skrifaði á undan, en þetta er þá bara fyrst formlega bloggið 8)

Það hefur ekki mikið gerst hjá okkur síðustu daga, þannig að engar fréttir góðar fréttir.

Ég mun reyna að bæta einhverju inná þessa blessuðu síðu næstu dagana, og kem þá kannski með ferskara blogg ;)

Ég kveð að sinni,

         Sirrý


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 13:35:57 / bakkatjorn4

ALLT AÐ GERAST

JÆJA NÚ GETIÐ ÞIÐ BYRJAÐ;)

KV. SKARI DANI.


» 1 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill